Fljótlegur og flottur málsverður
Hráefni
- 2 msk Dijon-sinnep
- 3 msk púðursykur
- 2 msk sojasósa
- 1 tsk sesamolía
- 1 msk vatn
- 1 tsk sesamfræ, ristuð
- 2 msk ólífuolía
- Salt og pipar eftir smekk
- 4 laxasneiðar
Aðferð
- Blandið fyrstu 5 hráefnunum á listanum saman. Forhitið grillið og lækkið svo hitann í „MEDIUM“. Penslið laxinn með ólífuolíu, saltið og piprið eftir smekk. Setjið fiskinn á grillgrindina, penslið með sojablöndunni og grillið í 5 mínútur. Snúið sneiðunum varlega, penslið með því sem eftir er af blöndunni og grillið í 5 mínútur í viðbót.
- Stráið ristuðum sesamfræjum yfir og berið fram strax.
- Ristið sesamfræin á lítilli pönnu við lágan hita og hrærið oft í, þar til þau eru gullinbrún.