Kjúklingasúpa með tortillaflögum

Þetta er réttur sem sérlega fljótlegt er að útbúa. Annað okkar grillaði kjúklingalærin og tortillurnar en hitt sneiddi grænmetið og útbjó súpuna. Þegar niðurskorin, grilluð kjúklingalærin voru komin í súpuna og hún farin að malla kláruðum við að ganga frá meðlæti og leggja á borð á 15 mínútum. Þetta var frábær máltíð sem smellpassaði sem hádegismatur eftir að hafa farið á skíði um morguninn og fyrir gönguskíðaferðina gegnum skóginn.