archive

Grillaður lax með engifersósu

Þeir sem vilja nota minni feiti geta sleppt smjörinu, en smjörið gerir laxinn bragðmeiri og áferðina þéttari. Ef notuð er fiskkarfa er hægt að snúa fiskinum einu sinni, þegar eldunartíminn er hálfnaður.   Hráefni   Laxaflök, um það bil 800 g 3 msk þurrt sérrí 2 msk sojasósa 1 msk sesamolía 1 msk ferskt engifer, …

Grillaður lax með engifersósu Read More »

Lax á planka

Rauður sedrusviður er sú viðartegund sem er oftast notuð fyrir grillplanka. Ef rétt er að farið gerir þessi grillaðferð laxinn sérlega gómsætan og gefur honum sterkan reykjarkeim.   Hráefni   Laxaflök Krydd Ólífuolía Grillplankar úr sedrusvið   Aðferð   Leggið plankann í eina klukkustund. Athugið! Hægt er að nota mismunandi vökva, t.d. engiferöl, bjór, vatn …

Lax á planka Read More »

Rauður sedrusviður er sú viðartegund sem er oftast notuð fyrir grillplanka. Ef rétt er að farið gerir þessi grillaðferð laxinn sérlega gómsætan og gefur honum sterkan reykjarkeim.

 

Hráefni

 

  • Laxaflök
  • Krydd
  • Ólífuolía
  • Grillplankar úr sedrusvið

 

Aðferð

 

  1. Leggið plankann í eina klukkustund.
  2. Athugið! Hægt er að nota mismunandi vökva, t.d. engiferöl, bjór, vatn með sjávarsalti eða nýkreistan sítrónusafa til að láta plankann drekka í sig bragð. Útkoman verður mismunandi eftir því hvaða bragðefni eru notuð.
  3. Þegar plankinn hefur verið tekinn úr vökvanum er hann þerraður með eldhúspappír og penslaður með ólífuolíu á báðum hliðum. Athugið! Til að fá margslungnara bragð er hægt að nota bragðbætta ólíuolíu.
  4. Penslið laxaflökin með ólífuolíu (venjulegri eða bragðbættri) og stráið kryddblöndu yfir eftir smekk. Leggið laxaflökin á sléttari hlið plankans. Forhitið grillið á „MEDIUM/LOW“, setjið plankann með laxinum á grillið og lokið grillinu. Grillið 15–20 mínútur.
  5. Athugið! Ef notaður er heill lax lengist grillunartíminn upp í um það bil 45–50 mínútur.
  6. Athugið hvort laxinn er fulleldaður. Holdið á að vera matt og losna auðveldlega sundur undan gaffli. Prófið hvort laxinn er tilbúinn með því að stinga í þykkasta hluta flaksins. Berið laxinn fram á grænmetisbeði og dreypið nýkreistum sítrónu-, límónu- eða appelsínusafa yfir. Verði ykkur að góðu!
  7. Athugið! Ef það kviknar í plankanum meðan grillað er skal loka grillinu og skrúfa fyrir brennarana. Áður en plankanum er fleygt skal láta hann liggja í vatni í svolitla stund til að tryggja að öll glóð hafi kulnað.